Nú á að taka á
28.08.2007 14:39:58 / stina

Dagur 2

Grrrrrrrr pirrrrrrrrrr og allt það :evil:

Ég er sem sagt að hætta að reykja :$ ekki gaman, þetta ætlar að fara eitthvað fáránlega í mig, ég þjáist af athyglisbrest núna og bragðlaukarninr eru eitthvað furðulegir, get ekki drukkið kaffi. Shitt hvað ég sé eftir þessari ákvörðun núna þótt ég viti að þetta er bara jákvætt, en það fer oft ekki saman það sem maður veit og það sem maður vill.

Þar fyrir utan er allt gott að frétta, íbúðin er öll að koma til, við erum búin að kaupa eitthvað af ljósum og þau eru komin upp. Hillurnar eru heima en ekki á veggjunum en fara vonandi upp sem fyrst. Við erum komin með glerskápinn og ég er byrjuð að raða inní hann, þannig þetta kemur allt á endanum. Það eina sem er farið að bráðvanta eru gardínur.

Jæja ætla fá mér tyggjó og te. Bless í bili 


» 1 hafa sagt sína skoðun

15.08.2007 15:00:09 / stina

Íbúð 4

Jæja þá erum við flutt inn.

Þvílíkur munur, Júlíus loksins kominn í sitt eigið herbergi og er þvílíkt ánægður með herbergið og umhverfið, búinn að ná sér í nokkra vini og sést nánast ekkert þessa dagana, út beint eftir leikskóla og stundum aftur eftir mat. Síðasti dagurinn hans í leikskólanum sínum er í dag og hann byrjar á nýja núna 20, rosa spennó.

Íbúðin er í rúst og ég er ekki búin að ná að ganga frá öllu, en það kemur. Það eru engar gardínur komnar upp nema inni hjá guttanum, erum með ruslapoka fyrir glugganum okkar og inni á baði:^) en það á breytast um helgina (vonandi).

Óttar er ekki byrjaður að flísaleggja en vona að hann fari sem fyrst í eldhúsið því það er parketkantur úr stofunni inní eldhúsið þaðnnig borðið okkar er hallandi og ég var næstum búin að taka stykki framan af tánni minni einn morguninn :cry:

Jæja ekkert meira að frétta í bili Bæjó


» 0 hafa sagt sína skoðun

03.08.2007 15:28:01 / stina

Íbúð 3

Jæja þá fer að styttast í fluttninginn en við verðum að vera búin að tæma holuna á sunnudaginn þannig morgundagurinn verður strembinn plús það að mamma og Helga Vala er komnar frá spáni þannig ég verð að koma þeim einhver staðar fyrir í öllu draslinu heima :$.

Staðan á íbúðinni er orðin nokkuð góð en herbergið hans Júlíusar klárast alveg í dag, það er bara eftir að setja listana en Óttar kláraði að parketleggja það í gær. Það á eftir að mála eina umferð á herbergið okkar en við bíðum alveg með aukaherbergið þar til síðast s.s engin pressa að klára það strax. Við verðum reyndar hurðalaus í nokkra daga því við fengum vitlausa stærð og verðum því að skila öllum hurðunum sem við vorum búin að fá, en það reddast.

Flísarnar eru komnar og Óttar náði í þær í gær, þegar við náum að klára parketið verður farið í að flísaleggja eldhúsið, forstofuna og þvottaherbergið, baðið verður mesta mausið.

Þegar allt verður klárt verður sko haldið innfluttningspartý.

Sjáumst í partýinu mús mús og knús. 


» 0 hafa sagt sína skoðun

30.07.2007 11:31:23 / stina

Íbúð 2

Jæja þá erum við búin að fá afhent, fengum hana 24. Óttar er búinn að vera á fullu að kítta, sparsla og pússa, ég kom síðan að hjálpa á föstudagskvöldið og við erum nánast búin að vera uppfrá alla helgina. Júlíus var svo heppinn að Júlía systir hans Óttars bauð honum uppí sumarbústað og hann var þar frá miðvikudegi og kom seinnipart í gær (sunnudag) mjög skrýtið að hafa hann ekki í kringum sig.

Við náðum að mála alla stofuna, eldhúsið og ganginn, og erum byrjuð að undirbúa herb. hans júlíusar það ætti að nánast klárast í dag. Óttar er líka búinn að parketleggja stofuna þannig við getum farið með eitthvað af dótinu uppeftir.

Haukur vinur hans Óttars og Bryndís kærastan hans komu við á sunnudaginn og hjálpuðu okkur alveg helling, alveg ómetanlegt takk æðislega.

Stefnan er tekin á að klára fluttninginn um helgina þótt að við náum örugglega ekki að klára allar framkvæmdirnar, en það er aldrei að vita ;)


» 2 hafa sagt sína skoðun

19.06.2007 10:48:27 / stina

Íbúð

Jæja þá er það komið á hreint. Við erum búin að skrifa undir kaupsmning og fáum afhent á hádegi 1 ágúst :D

Þvílík spenna í gangi og guttinn er orðinn rosa spenntur, fær loksins sitt eigið herbergi og við ætlum að útbúa leikherbergi fyrir hann uppá lofti, allt draslið á einum stað. Ég er nú held ég spenntust fyrir herbergið hans, búin að kaupa loft og veggljós inn til hans og það var auðvitað Superman hehe, við þurfum líka að fara kaupa parket og málningu til að gera herbergið æðislegt.

Það verður líka þvílíkt æðislegt að fá herbergi undir allt tölvudótið hans óttars, stærra baðherbergi og ný húsgögn. Ekkert nema jákvætt framundan.


» 2 hafa sagt sína skoðun

23.05.2007 12:47:37 / stina

Ehemm

Jæja, kominn pínu langur tími síðan bloggað var síðast og ýmislegt búið að gerast.

Við fjölskyldan skelltum okkur í stutta utanlandsferð og fórum til köben og svíðþjóð og var sú ferð vægast sagt frábær. Við gistum hjá Júlla bróðir og Helene í köben og áttum frábæran tíma með þeim rosa mikið labbað og eytt miklum pening. Síðan fórum við í frábæra helgarferð yfir til svíþjóð og gistum það hjá Júlla og Heiðu, vægast sagt gaman að kíkja á þau í Lundi, Júlíus fékk loksins leikfélaga í ferðinni en hann og Þórdís voru límd saman, miklu eytt þar líka :D

Ég og Laufey þurftum að finna okkur nýjar vinnur og fegin er ég verð ég bara að segja. Mikið bull í gangi á gamla staðnum, þrúgandi andrúmsloft og einn sá versti vinnumórall sem ég hef lent í, ég fékk æðislega vinnu nánast strax og er ekkert smá ánægð með mína stöðu varðandi það í dag

Júlíus átti fimm ára Superman afmæli núna í maí og mikið fjör, margir gestir og margar gjafir,ég bara á eitthvað erviitt með að trúa því að litli prinsinn minn sé orðinn svona stór, áleið í skóla næsta haust, ótrúlegt.

Núna eru spennandi hlutir í gangi því stefnan er tekin á íbúðarkaup og allt í gangi með þau mál núna, spennandi og þreytandi úfff.

Jæja það helsta komið held ég, sjáumst seinna


» 3 hafa sagt sína skoðun

27.02.2007 15:56:52 / stina

Litli prinsinn

Minn er búinn að vera frekar mikið veikur þessa dagana, hélt loksins að allt færi að lagast eftir að rörin voru sett og nefkirtlarnir teknir, en greyið var nú ekki búinn að vera lengi í leikskólanum þegar hann þurfti að hanga aftur inni, kominn með hlaupabólu, fékk svo niðurgang ofaní allt saman. Vonandi allt búið núna og fyrsti dagurinn á leikskólanum var í dag, Greyið búinn að hanga inní í samtals 2 vikur.

Það er alveg brjálað að gera í vinnunni og ég held að við Laufey verðum bráðum lagðar inná klepp, endalaust vesen.

En núna hef ég eitthvað til að hlakka til. Við Óttar ætlum að skella okkur út að borða um næstu helgi og svo styttist óðum í Köben vííí.

Jæja hef ekki tíma til að bulla meira.

*Veif* 


» 0 hafa sagt sína skoðun

16.02.2007 13:56:53 / stina

Kominn tími

Hmmm jæja kominn tími á smá blogg.

Það hefur ekkert merkilegt verið í gangi, mikil vinna og lítið verið að leika. Er samt að fara í bústað núna um helgina með minni litlu fjölskyldu eins ætlar mágkona mín og hennar fjölsk að koma og fá að gista hjá okkur því þau eru að byggja þarna rétt hjá og ekki hægt að sofa í þeim bústað akkurat núna, þannig þetta verður örugglega frábær helgi.

Smá spenna í gangi núna því við erum búin að kaupa okkur ferð til köben og förum um miðjan mars, ætlum líka aðeins að skreppa til svíþjóð að hitta Júlla og Heiðu ásamt krökkunum þeirra Þórdísi og Kára. Við erum líka svo heppin að Júlli bróðir er fluttur til Köben og fáum við gistingu hjá honum og kærustunni hans, mikill sparnaður í því að þurfa ekki að borga fyrir hótel. Ég er að spá í að missa mig aðeins í H&M þó það endi líklegast í því að lítið verður keypt á mig en mest á Júlíus, bölvun mæðra að fá samviskubit yfir að versla á sjálfa sig.

Hef ekki tíma í lengra blogg

(((KNÚS)))


» 2 hafa sagt sína skoðun

21.11.2006 15:15:36 / stina

Mistök

Úff talandi um að maður sé sjálfum sér verstur, ég gerði þau mistök að finna síður á netinu sem fer illa fyrir brjóstið á mér og valda mér martröðum, voðalega er maður samt heppinn að búa á litla íslandi.
Síðurnar er Bandarískar og þar eru póstaðar myndir og tilkynningar um týnd (rænd) börn sem að miklu leiti eru tekin af barnaníðingum eða klikkuðum foreldrum, einnig önnur síða þar sem er tilkynnt um þá sem er verið að leita af og þá á meðal fólk sem hefur myrt börnin eða rænt þeim.

Hvað er að fólki segi ég bara, ég stend mig stundum af því að horfa á litla gullmolann minn og ég finn svo vel hvað ég er heppin og hvað ég elska hann mikið en finn svo mikla sorg fyrir þessu litlu krílum út í heimi og vona að þau endi á betri stað.

Er ekki bara málið að skilja hvað þessi elsku börn eru mikil blessun allavegana er ég farin að finna meira fyrir því í dag og finn hvað ég er þakklát að búa á þessum litla klaka og geta varið mín börn.

En svona er nú heimurinn í dag það er bara spurning um að venjast því eða hvað, vill maður venjast þessum hlutum, æi ég veit ekki.

Annars þar fyrir utan er nú bara allt gott að frétta, ég fékk æðislegar fréttir í gær, mamma mín og hinn gullmolinn minn hún Helga Vala ætla að vera hjá okkur Óttari og litla prins um jólin, nú er ég farin að hlakka til jólana, það er alltaf svo gott að fá þær og þá líka fæ ég uppáhald jólamatinn minn nefnilega peking önd mmmmmmm.
Þær verða svo örugglega hjá ömmu og afa í kef yfir áramótin.

Allavegana verum góða hvort við annað og knúsum börnin okkar aðeins meira, það nefnilega skaðar engann.

» 1 hafa sagt sína skoðun

19.11.2006 23:54:02 / stina

Helgin

Þetta er búið að vera rosa fín helgi.
Var reyndar drulluslöpp á fösturdaginn og fór heim úr vinnunni og lá undir teppi fyrir framann imbann og held bara að það hafi reddað mér þannig að helgin byrjaði ekki vel en það rættist nú úr því, guttinn fékk reyndar svaka augnsýkingu á föstudagskvöldið og var ég orðin freka stressuð en hann vaknaði fínn á laugardagsmorguninn.

Laugardagurinn fór í létt þrif og svo kíktum við til tengdó og Óttar var að hjálpa þeim við að setja upp eldhúsið hjá þeim, við fengum síðan geggjað gott að borða hjá þeim mmmm.

Júlíus fékk kast á sunnudagsmorguninn þegar hann sá alla snjóinn og náði að draga mig út í göngutúr, ekkert smá gaman, síðan kíktum við aðeins með tengdamömmu í blómaval og síðan fóru þeir feðgarnir út í snjóinn ekkert smá gaman hjá guttanum.

Knús frá mér

» 0 hafa sagt sína skoðun

14.11.2006 10:08:26 / stina

Öfund

Oh Óttar kom heim í gær með geðveikt flotta fartölvu, lítil og nett en hún er bara lánsvél frá vinnunni svo hann geti unnið heima, mig langar ekkert smá mikið í hana.

Annars er allt gott að frétta, þurfti reyndar að ryðjast inn til pabba því amma hringdi í mig með hjartað í buxunum yfir því að pabbi svaraði ekki símanum, reyndi að segja henni að kall greyið væri bara sofandi en það þýddi nú lítið þannig ég þurfti að keyra heim til pabba ryðjast inn með lyklunum sem ég hef bara til að finna pabba steinsofandi uppí rúmi. Hún amma er er alveg milljón.

Fór alltof seint að sofa í gær og er alveg dauð þreytt en ætla samt að æfa seinnipartinn og fara snemma að sofa í kvöld, kanski bara að ég leggi mig með guttanum.

Nöldraði enn og aftur yfir ísskápnum í gær, hann er bara of lítill þ.e.a.s frystirinn er of lítill, en vonandi getum við keypt nýjann í desember það væri nú ekki slæmt.

((((Knús))))


» 0 hafa sagt sína skoðun

13.11.2006 13:49:36 / stina

Jóla hvað

Jæja þá er búin þessi "litlu jólin" í vinnunni ansi skrautlegt lið þar á ferð en megnið að tímanum var mjög skemmtilegur þó ekki allur en vonandi verður gaman allan tíman þegar við af skrifstofunni förum, hef reyndar ekki trú á öðru ef allir haga sér vel.

Annars var lítið gert um helgina, við hjúin vorum reyndar dugleg á sunnudeginum, þrifum alla íbúðina og kíktum svo til pabba og síðan á tengdafólkið, kvöldið fór bara í leti fyrir framan imbann með popp og kók, annars er þetta pínu fyndið ég horfi á imbann en óttar glápir á tölvuna en við kúrum bæði þó uppí sófa :D

Vorum einmitt að fá nýjann (notaðan) sófa sem er geggjað flottur þó miki minni en sá sem við vorum með en hann er miklu þægilegri, keyptum okkur nýtt sófaborð og held ég að þetta sé annar hluturinn sem við kaupum inní íbúðina allt annað höfum við fengið gefins frá fjölskyldunni en góðir hlutir gerast hægt :lol:.

Jæja verð að halda áfram að vinna.

(((Knús)))


» 0 hafa sagt sína skoðun

09.11.2006 12:51:04 / stina

Hef reyndar ekki tíma

En ætla að skella inn nokkrum línum.

Brjálað að gera í vinnunni en það er bara jákvætt miklu betra en að hafa ekkert að gera.

Við erum að fara í smá jólahlaðborð hérna í vinnunni á laugardaginn en þá að fara með alla erlendu starfsmennina í smá ferð. Byjum á að fara til Selfoss að skoða blokkir sem hafa verið reistar úr einingunum fá okkur, smá bjórsull og samlokur, síðan á að skella liðinu á safn (og geyma þá þar(nei djók :lol:) síðan verður farið og borðað á Stokkseyri Humar mmmmmm. Svo er bara djamm.

Óttar minn er nýbúinn að eiga afmæli Til hamingju elskan mín. það var smá létt partý heima um síðustu helgi en svo kíkti fjölskyldan í köku og smá meðlæti í gær, við fórum líka saman út að borða í hádeginu, eitthvað sem við höfum lítið gert af, bara gaman.

Jæja verða að fara að vinna sjáumst snúllur


» 1 hafa sagt sína skoðun

02.11.2006 11:48:05 / stina

Kominn tími til

Hehehe ekkert smá löt að blogga undanfarið en það er 70% brjálað að gera 30% leti.

Það hefur nú ekki veri mikið spennandi að gerast undanafarið, ég fór á Boot camp námskeið og það var brjálað púl en alveg frábært samt, hef svo skellt mér í pallabrennslu inná milli.

Ég er að klepra þessa dagana á íbúðinni sem við búum í hún er bara alltof lítil fyrir okkur og þar sem við erum að leigja hana þá getum við lítið gert í henni þótt við séum búin að gera slatta, parketið komið á, óttar er byrjaður á að mála hurðirnar á eldhús innréttingunni en það kemur ennþá vond lykt ú vaskaskápnum og það hefði þurft að hreina eldhúsið út og setja nýtt, en við erum orðin ákveðin í því að kaupa okkur eftir áramót og ekki seinna vænna.

Það er nóg að gera í vinnunni og það er bara helv... fínt, er að læra heilmikið og rosa ánægð þótt launin mættu alveg hækka :lol:

Það verður haldið uppá afmælið hans óttars núna um helgina, ekkert svaka partý bara vinir hans og við strákurinn, en við ætlum öll að borða saman heima og hafa það notarlegt svo fer kallin á skotveiðinámskeið og ætlar að skella sér á rjúpu vert hvað mér finnst hún alls ekki góð en tengdamamma verður ánægð :P

Það verður núna 11 svona mini jólahlaðborð en vð ætlum að fara með alla erlendu starfsmennina til selfoss og endum á Stokkseyri í humarveislu mmmmmmm slef. Svo förum við hérna af skrifstofunni seinna í svona ekta íslenskt hlaðborð ohhh borða nammi góðann mat.

Jæja verð að snúa mér aftur til vinnu, eigið góðann dag :haha:


» 3 hafa sagt sína skoðun

07.07.2006 15:19:01 / stina

!

TIL HAMINGJU MEÐ AFMÆLIÐ Á MORGUN ELSKU LAUFEY MÍN :D


» 4 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 6
Dagatal
febrúar - 2012
S M Þ M F F L
1234
567891011
12131415161718
19202122232425
26272829
FyrriNæsti